Meira um geðlyf og lyfjaiðnaðinn sem selur meira en hann læknar

Ex Drug Rep -- Manipulating Doctors

 

Truth About Antidepressants & Chemical Imbalance, Psychology

 

...Until the Side Effects Kill You


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ein af þeim sem "lenti" í geðheilbrigðiskerfinu, sem virkar basically þannig að maður fer til geðlæknis og kemur út 4 mín síðar með lyfseðil upp á geðlyf. Maður fer heim og tekur það eins og fyrirskipað og líður enn verr. Þá fer maður aftur og 4 mín seinna kemur maður út með lyfseðil upp á annað lyf sem maður á að taka ofan í hitt lyfið sem virkar ekki o.s.frv.  Ég var í þessum vítahring í 6 ár og á endanum var ég látin taka 5 mismunandi geðlyf á hverjum degi í algerum hrossaskömmtum. Á endanum var ég orðin 183 kg, algerlega búin á sál og líkama, þegar ég sagði loksins stopp.

 Geðheilbrigðiskerfið á Íslandi er næstum algerlega byggt á lyfjagjöf og það er mín reynsla að þessi stefna er að stefna lífi, heilsu og líðan allra sem lenda í þessu í mikla hættu... en samt er fólk algerlega blint fyrir þessu, og enginn vilji til að breyta neinu.

Freyja (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 17:40

2 identicon

Gagnrýni á geðheilbrigðiskerfið er fullkomlega réttmæt. Sérstaklega geðheilbrigðisstofnanir, enda lítið annað en geymslupláss fyrir fólk sem passar ekki inn í samfélagið, sem er ekki gefin lyf til að því líði betur, heldur til að hafa það til friðs. Það er vitaskuld óþolandi.

En hinsvegar er eitt við geðlyf sem fólk verður að skilja, þar á meðal hin ágæta Gwen Olsen sem ég ber fulla virðingu fyrir, og það er að vanhæfni lækna, og sú leiðinda staðreynd að þeir viti ekki allt best, þýðir ekki að lyfjaiðnaðurinn í heild sinni sé vondur.

Það sem vantar í geðlyfjum og geðsjúkdómameðferðum almennt, er einfaldlega fagmannlegri vinnubrögð. Ég er á þunglyndislyfjum sem ég fullyrði hiklaust að björguðu lífi mínu, en bæði stúderaði ég lyfið á eigin spýtur þegar ég byrjaði á því, sem og að ég var upplýstur afskaplega vel af lækninum mínum um allt sem maður þarf að vita.

Ég hef tekið eftir því að fæstir þunglyndissjúklingar á lyfjum virðast vita jafnvel mikilvægustu atriðin varðandi þunglyndislyf almennt. Fólk virðist ekki t.d. vita að það er eðlilegt að þau hafi öfuga verkun fyrstu 2-3 vikurnar, þannig að maður verður að átta sig á því og lifa með því í þann tíma, fæstir virðast ennfremur vita að það er hreinlega stupid að hætta á þeim "cold turkey" vegna þess að helmingunartíminn er svo stuttur, fæstir virðast átta sig á því að það er aragrúi af hugsanlegum aukaverkunum og að þau virka "einungis" á um 94% þunglyndissjúklinga yfirhöfuð.

Vandinn er skortur á upplýsingaflæði til lyfjaneytenda, ekki lyfin sjálf. Vanhæfni lækna til að upplýsa sjúklinga sína virðist líka vera alvarlegt vandamál.

En athugið samt öll, sem hafið prófað nokkur lyf, að ekkert lyf virkar eins á alla. Ekkert lyf er aukaverkanalaust, og ekkert lyf sem hrærir í hausnum á manni, er einfaldlega öruggt. Það er og verður alltaf til aragrúi af fólki sem bregst illa við jafnvel bestu lyfjunum á markaðnum, og það er ekki lyfjabransanum að kenna heldur náttúrunni.

Eins og ég segi, gagnrýni á lyfjabransann og lækna er réttmæt upp að því marki að sjúklingar eru ekki nægilega upplýstir, og sérstaklega geðlæknar virðast hafa of mikla tilhneigingu til að díla við vandamál einfaldlega með lyfjagjöf. Það lagast ekkert með því að drulla bara yfir þunglyndislyf eða lyfjabransann, þetta er klassískt vandamál sem þekkist í öllum iðnaði á öllum tímapunktum mannkynssögunnar. Lausnin er einföld; upplýsing. 

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 11:03

3 Smámynd: Alfreð Símonarson

Freyja -> Takk fyrir að deila reynslu þinni hérna. Það eru margir búnir að lenda í þessum vítahring og er þetta hrikalegt að fólk þarf mismunandi lyf, hvað þá 5 tegundir á dag. Ég veit að það er samt fólk sem segir að geðlyf hafi bjargað lífi þeirra og ekkert nema gott um það að segja en svo á hinn bóginn eru það þá bara einstök tilfelli af öllum hinum sem taka inn geðlyf.

Sæll og blessaður Helgi! Takk fyrir áhugann og mjög svo málefnalega athugasemd. Ég vill taka undir með þér að sama lyfið getur haft mjög mismunandi áhrif á fólk en flestir verða háðir þeim eftir nokkra mánaða neyslu. Ég vill samt líka benda á að lyfjaiðnaðurinn er ekki alslæmur en þar eru öfl sem vilja græða frekar en að lækna. Af hverju bara að nota eitt lyf þegar það er hægt að selja þér 5 lyf og sannleikurinn með geðlyf er að þau eru vímuefni sem eru ekki mjög ólík vímuefnum sem vaxa í náttúrunni, eins og ópíumvalmúinn. Lyfjaiðnaðurinn heldur fast í hendur ríkisstjórnarinnar sem setur lög til að banna öll lyf nema að lyfið sé framleitt af lyfjafyrirtæki og verið að bola út fólki sem notar náttúrulækningar/ alternative medicin. Þessi þróun er ekki af hinu góða að mínu mati og á fólk að eiga val á að setja allt ofan í sig sem það vill, svo lengi sem það veit af áhættunni á fíkn og aukaverkunum (sem yfirleitt eru mismunandi milli einstaklinga). En því miður þá eru flestir sem vilja gera allt sem yfirvöld vilja og taka upplýsingum þeirra sem heilögum sannleik án þess að rannsaka útkomuna = sami skíturinn/frelsisskerðingin í nýjum pakkningum.

Takk fyrir og lifi byltingin!
Alli

Alfreð Símonarson, 15.8.2008 kl. 14:39

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Military-industrial-complex... Media-industrial-complex...  og svo auðvitað Medical-industrial-complex. Ef það er ekki til sameindaformúla sem hægt er að skrásetja einkaleyfi á þá er það auðvitað hættulegt fyrir homeland og styrkir bara málstað hryðjuverkamannanna...

Guðmundur Ásgeirsson, 18.8.2008 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband