Hugo Chavez hefur lent í valdaráni

Hver ykkar vissi af þessu?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FLÓTTAMAÐURINN

Þú ert oft á tíðum með mjög áhugaverð myndbönd sem er fræðandi að horfa á en ef ég má koma með eina ábendingu þá er pínu galli hvað þau eru oft löng. Ég held að það fæli marga frá því að horfa á þau. En endilega halda áfram því að er nauðsynlegt að benda fólki á að það er margt þarna úti sem venjulegt fólk fær aldrei að sjá í venjulegum fréttum.

FLÓTTAMAÐURINN, 2.1.2009 kl. 21:23

2 Smámynd: Andrea J. Ólafsdóttir

Hugo Chavez var strax óvinsæll hjá Bandaríkjamönnum sem styðja últrafrjálshyggjuna sem nú hefur komið öllum heiminum í vandræði.

Svo virðist sem Bandaríkjamenn hafi ýtt undir/stutt valdarán Chavez þrátt fyrir að hann hafi hlotið yfirgnæfandi fjölda atkvæða í lýðræðislegum kosningum.

Chavez er umdeildur, en við verðum bara að sætta okkkur við að hann er mjög vinsæll forseti í sínu eigin landi, hann er að gera góða hluti fyrir fátæka fólkið í landinu og einungis minnihluti þjóðarinnar vill hann burt.

Það eru Bandaríkjamenn og ný-últrafrjálshyggjumenn sem eru á móti Chavez því þeir vilja sölsa undir sig olíuna í landinu og verða ríkir á kostnað annarra á meðan hann vill að olían sé þjóðareign og að hinir fátæku fái menntun og þjónustu og lifi sómasamlegu lífi. Ef Venezuelabúar vilja að auðlindir þeirra séu þjóðareign og styðja stefnu hans þá skil ég bara ekki hvað USA og aðrar þjóðir þurfa endilega að skipta sér af því. Það virkar hjá þeim ef svo mikill meirihluti þjóðarinnar vill það og kýs það og þarf ekki að vera ógn við annað í öðrum löndum sem kjósa annað yfir sig.

Ég held það væri ráð að Íslendingar áttuðu sig á því að vera ekki að fylgja blárri stefnu XD um að einkavæða allt, þ.m.t. auðlindir þjóðarinnar - nýtum þær frekar (varlega þó m.t.t. umhverisverndar) í þágu þjóðarinnar með innkomu í ríkissjóð sem skilar sér síðan inn í velferðarkerfið okkar, heldur en að einkavæða þær fyrir örfáa gráðuga sem langar svo til að kúka í gullklósett! :)

Andrea J. Ólafsdóttir, 3.1.2009 kl. 14:31

3 identicon

sæll tékkaðu á þessu: zeitgeistmovie.com og thevenusproject.com

Oskar Steinn Gestsson (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 22:44

4 Smámynd: Alfreð Símonarson

Hæhæ og takk fyrir áhugann, já og gleðilegt nýtt ár

FLÓTTAMAÐURINN: Sum videóin eins og þetta eru einmitt mjög löng +klst. Ætli maður fari ekki að vara við hvaða videó eru löng enda vill maður taka frá tíma fyrir þau.

Andrea: Já hann var málaður út í horn af USA, CIA, IMF og Bush fjölskyldunni en Hugó Chavez er með algjört málfrelsi og prentfrelsi fjölmiðla á sinni stefnuskrá. Hann lendir í þessu þ.s. hann vill þjóðnýta olíuútflutninginn sem er 4. stæðsti í heiminumm svo að gróðinn skili sér til almennings. Hinu svokölluðu "frjálsu" einkareknu fjölmiðlar landsins eru  flest allir að pota propaganda fyrir elítuna sem á þá og það eru einmitt djöflar hliðhollir CIA og Bush fjölskyldunni.

Óskar: Já ég hef einmitt póstað báðum myndunum hérna á blogginu mínu

Haukur:  Kaninn (skuggastjórnvöld USA CIA IMF) hafa vaðað yfir réttlætið á skítugum skónnum og er það okkar að uppljóstra almenning um sannleikann í því máli.

Alfreð Símonarson, 6.1.2009 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband