18.12.2007 | 23:48
Chemtrail Proof - German Military Exposed og gröf frá loft.rvk.is
Vinir okkar í þýskalandi hafa rannsakað efnaskýin og komist að þeirri niðurstöðu að það er logið að okkur í þeim efnum. Þungamálmar og fínir trefjar eru meðal þeirra hluta sem fundust við sýnistöku.
Vinsamlegast kommentið á þetta, hvað hafa íslensk stjórnvöld gert til að sporna við þessari efnaúðun? Enginn hefur mynnst á þetta í fréttum, hvað þá á þingi. Hvað með að fá háskólanna til að framkvæma sýnistökur. Skoðið gröfin hjá http://www.loft.rvk.is/, þarna má sjá hvað þetta hefur aukist síðustu ár og skoðið síðustu mánuði, fokkíng skuggalegt.
Chemtrail Proof - German Military Exposed.
Svo eru sumir sem tengja þetta við H.A.A.R.P. útgeislunarloftnetunum.
Space Weapons
Eftirfarandi gröf eru tekin frá http://www.loft.rvk.is/
Tímabil 1. jan 2007 til 18. des. 2007
Næstu eru tímabilið 2000 til 18. des 2007
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.12.2007 kl. 01:35 | Facebook
Athugasemdir
Sannarlega athyglisverð myndbönd og gröfin ekki síður. Nú þarf að krefja stjórnvöld hér svara sem allra fyrst um þeirra vitneskju.
Georg P Sveinbjörnsson, 19.12.2007 kl. 01:59
Þetta er rosalegt
Jónína Dúadóttir, 19.12.2007 kl. 07:32
Takk fyrir að nefna þetta mikilvæga málefni og endilega haltu því vakandi.
Munið svo ávallt að ruslpóstsveitur (sem eitt sinn kölluðust fjölmiðlar) ber aðeins að nota sem gagnvísa, það er að huga sérstaklega að því sem þær forðast að ræða.
Baldur Fjölnisson, 19.12.2007 kl. 14:53
Gott efni, haarp myndbandið er mitt uppáhald. Btw - skilst að upprunalega haarpan sé ekki í gangi lengur, sennilega nota þeir núna minni höörpur dreiðar um hvippinn og kvappinn, samanber okkar 2 stöðvar á íslandi, með samstilltu átaki að selja global warming konseptið, giska ég á.
Gullvagninn (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 15:48
Þó það sé alltaf gaman af svona vísindaskáldskap þá fæ ég nú ekki séð að það séu nein haldbær og raunverulega vísindaleg rök fyrir þessum kenningum. Það er auðvelt að hræða og blekkja fólk með því einu að nota stór orð sem enginn skilur en hljóma eins og eitthvað úr Star Trek.
Ég gafst upp á að horfa á þetta HAARP kjaftæði þegar farið var að tala um "mind control"....ég meina... give me a break! Á maður þá að fara að ganga um með álpappírs-hatta?
Ég get líka fullyrt að farþegaþotur bera ekki nein einustu "chemicals" til þess að spreyja í andrúmsloftið... nóg menga þær nú samt því miður. Ástæðan fyrir auknum contrails er einfaldlega stóraukin flugumferð á síðustu árum...ekkert spooky í gangi þar held ég.
Róbert Björnsson, 19.12.2007 kl. 17:51
Róbert, þú ættir bara að lesa þér til, það er viðurkennt að herinn hefur spreijað t.d. í kanada, og svo auðvitað virðast þeir hafa viðurkennt það í Þýskalandi (sbr fyrsta myndbandið). Farþegaþotur duga ekkert í svona spray, bara risa sprengiflugvélar eða flutningaþotur. Það er munur á contrails og chemtrails.
Gullvagninn (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 20:29
Róbert, stjórnvöld í Bretlandi hafa líka viðurkennt að stunda þetta, en telja sig ekki bera skyldu til að upplýsa tilganginn eða hverju hefur og er verið að úða. Þannig að það þarf enginn að efast um að þetta er raunverulega í gangi, það sem fyrst og fremst vekur áhyggjur er áhugi og þáttaka hergagnaiðnaðarins á þessu og H.A.A.R.P dæminu semog leyndin sem þó hefur minnkað með árunum þó að ekki sé mikið talað um þetta opinberlega.
Georg P Sveinbjörnsson, 20.12.2007 kl. 00:06
Róbert, það kemur glögglega fram að það er verið að úða einhverju í andrúmsloftið og þykir mér samlíking þín við star trek frekar lákúruleg. Þetta er eitthvað sem við skiljum flest og enskumælandi einstaklingur á í engum erfiðleikum að skilja sessar klippur, kanski pása á meðan maður klárar að lesa í fyrstu klippuni. Efnarákirnar (Chemtrails) hafa verið myndaðar alsstaðar af hnettinum, ég hef séð svona yfir Íslandi nokkrum sinnum síðustu 7 ár.
Endilega skoðið þáttin sem ég var að bæta inn í færsluna Chemtrail Weather Control - NBC
Alfreð Símonarson, 20.12.2007 kl. 01:55
Það er þýðingarlaust að reyna að drepa niður umræður um þetta og önnur grundvallarmálefni (sem ruslpóstur sem eitt sinn kallaðist fjölmiðlar forðast eins og heitan eldinn) með einhverjum stimplum og hugsunarstoppurum. Það virkar ekki lengur. Fólk veit einfaldlega betur nú orðið.
Eitthvað miður geðslegt hefur verið í gangi og í þessu sambandi getið þið reynt að fletta upp á Morgellons Disease sem hugsanlega tengist þessum úðunum.
Baldur Fjölnisson, 20.12.2007 kl. 14:11
íslenskir fjölmiðlar þegja yfir ÖLLU sem er eitthvað vafasamt, það er komið fram við okkur einsog við séum heilalausari en marglyttur!
halkatla, 23.12.2007 kl. 03:19
afhverju er verið að úða þessu? það er ekki bara spurning um innihaldið og áhrifin sem þetta hefur, heldur bara afhverju í andskotanum? Hver er tilgangurinn? Mig dreymir um svarið.... (ekki bókstaflega því þá fengi ég martröð )
halkatla, 23.12.2007 kl. 03:22
Þetta er hluti af "New world order" og kallast depopulation, Það eru já plön um að eiða 80% af öllu mannkyni fyrir árið 2012.
Heimildir um þetta má finna á youtube, The Endgame með Alex Jones.
Ég mæli með www.infowars.com og www.prisonplanet.com
Nú er kominn tími fyrir byltingu.
Andri (IP-tala skráð) 25.12.2007 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.