20.11.2007 | 20:02
Saga skuggastjórnvalda í grófum dráttum
Þessi heimildarmynd gefur góða mynd á hvernig skuggastjórnvöldin í USA hafa unnið síðan fyrir Víetnam stríðið til 1987. Þessi mynd er 1 tími og 26 mínútur, Bill Moyers sem vann áður með JFK er þulur og er þetta mjög vel gerð heimildarmynd. Ég vill benda á eitt atriði sem er gott að hafa bak við eyrað þá flassa klíkur klíkumerkjum, þá sérstaklega með höndunum, og eru frímúrarar/leyniþjónustur þar engin undartekning. Prófið að sjá hvort þið getið spottað út "frímúrarana" í þessu video og hvaða áherslur eru þar í gangi??
Myndin er ekki við hæfi barna, það sjást lík í nokkrar sekúndur en ég hvet alla sem skilja ensku að horfa á þetta:
The Secret Government: The Constitution in Crisis, by Bill Moyers | 1 hr 26 min - Feb 14, 2007
Hérna er svo annar rúmlega tveggja tíma fyrirlestur með honum Mike Ruppert um tengd málefni og 9/11, alveg nauðsinlegt að taka frá tíma og horfa á þetta allt :
THE TRUTH & LIES OF 9/11 | 2 hr 17 min 37 sec
Endilega látið skoðun ykkar í ljós. Kær kveðja Alli.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:30 | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir þessa hlekki, þarf að skoða þetta sem fyrst...maður er að læra ansi hratt þessa dagana
Georg P Sveinbjörnsson, 20.11.2007 kl. 20:32
Fyrri hlekkurinn virkar ekki
Georg P Sveinbjörnsson, 20.11.2007 kl. 20:36
Skrítið prófaðu :
http://video.google.com/videoplay?docid=3505348655137118430
og
http://video.google.com/videoplay?docid=8797525979024486145
Takk fyrir innlitið ég pósta eins og ég get þessa daganna enda mikið af efnivið.
Kær kveðja Alli.
Alfreð Símonarson, 20.11.2007 kl. 20:45
http://video.google.com/videoplay?docid=8797525979024486145&q=the+truth+and+lies+of+9%2F11&total=669&start=0&num=10&so=0&type=search&plindex=0
Alfreð Símonarson, 20.11.2007 kl. 20:47
Var að laga færsluna, muchas gracias compadre!
Alfreð Símonarson, 20.11.2007 kl. 20:55
Takk, virkar flott núna, best að nota restina af vaktinni til að kíkja á þetta.
Georg P Sveinbjörnsson, 20.11.2007 kl. 22:11
Ég lofa að segja engum frá því
Alfreð Símonarson, 20.11.2007 kl. 22:55
Þessi heimildarmynd Bill Moyers er rosaleg... það þyrfti að sýna þessa mynd á hverri einustu stjónvarpsstöð hérna í Ameríku. Það er sorglegt að á þessum 20 árum hefur fólk ekkert lært og sagan endurtekur sig. Patriot Act hefur fært þetta allt í "löglegan" búning og Oliver North er celebrity þáttastjórnandi á Fox "news".
Ég tek hins vegar undir með konunum frá Minneapolis í lok myndarinnar...að það er erfitt að þurfa að opna augun og sjá hlutina eins og þeir eru.
Róbert Björnsson, 21.11.2007 kl. 00:20
Ég er sammála þér Róbert, og þangað til að hver einasta sjónvarpsstöð er búin að sýna þetta þurfum við að dreyfa þessum hlekkjum.
Kær kveðja Alli.
Alfreð Símonarson, 21.11.2007 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.