Propagandus maskínus kúkus í buxus

Jæja, hættan er aðvofandi og hatursáróðurinn fær ný andlit. Hérna er á ferðinni íslenskur nafnleysingi á www.youtube.com/user/hvitlidi sem spyr hvort að bylting sé í vændum og reynir að sverta ræðu einnar ungar dömu sem lagði til grunns að ráðamenn yrðu látnir svara til saka ef það yrðu ekki kosningar innann viku. Þessi ágæta dama er að nýta sér þann stjórnarskráar varinn rétt að tjá sig um ástandið og uppástungan að bera ríkisstjórnina út úr þinginu ef þeir bæru ekki ábyrgð á hlutunum og efldu til kosninga. Svo heldur hræðsluáróðurinn áfram og spyr hvort múgurinn gæti tekið upp á þessu og fer svo að sýna innrásina á lögreglustöðina, sem skeði einmitt sama dag. Ég er persónulega á móti því að fámennur hópur geti leitt fjöldann til heimskulegra verka eins og td. að brjótast inn á lögreglustöðina. Allt ofbeldi er óásættanlegt, þá frá báðum hliðum því jú það er fámennur hópur sem vill valda usla sem starfar innann beggja hliðanna. Ekki láta grímuklæddu nafnleysingjanna espa þig til ofbeldis, ef hættan steðjar að þér og lífi þínu er stefnt í háska skaltu forða þér og kalla á hjálp. Munið einnig að video kamera er öflugur varðnagli þegar misrétti er annarsvegar, sannleikurinn þarf engar fansí klippingar en propaganda þarf svoleiðis. Passið ykkur á þeim sem espa til óeirða, núna er ég að tala við almenning og sérstakllega til þeirra lögregluþjóna sem vilja að allt gangi vel og snuðrulaust fyrir sig en elítan er því miður búin að heilaþvo fullt af fólki. Hér er einmitt einn slíkur, sá nafnlausi hvitildi með sitt eina video.



Elítan gengur mjög langt við það að halda völdum og ekki langt síðan að leynilögreglumenn voru staðnir að verki við einmitt þann verknað að espa til ofbeldis við óeirðalöggur og stefna lífi borgaranna í stórhættu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Þegar Geir Jón talsmaður, kom heim eftir rúntinn á þjóðvegi 66 sagði hann orðrétt að líklega myndi ofbeldi aukast og þörf á fjölgun lögreglumanna. Ég hef mikla trú á að oft auki löggan meðvitað vandræðin viljandi.

Fríða Eyland, 9.12.2008 kl. 04:23

2 Smámynd: Alfreð Símonarson

Takk fyrir áhugann Haukur og Fríða Það sem ég vildi koma frá mér er að við verðum að vera vel á verði og vinna saman þegar við mótmælum. Það er ákveðinn hópur sem auðvaldið hefur komið inn báðum meginn við borðið og lærdómurinn sem ég dreg af því er að hafa video kameruna ávallt til staðar. Allt þetta ofbeldi og rugl sem fréttirnar gera mat úr er augljóslega taktík til að sverta mótmælendur sem nota bene eru 99% friðsælt fólk. Við látum stundum espa okkur upp í slagsmál en það er ákkúrat það sem helv!"$#%#&"!"$#" andskotarnir vilja. Ég ætla ekki að veita neinum ofbeldi, nema viðkomandi er að fara að drepa mig, eða svipta mig grunn mannréttindum. Endilega fræðið fólk um hvernig lögreglan í Kanada ætlaði að leggja líf fjöldann af almenningi í stór hættu. Kær kveðja og Lifi Byltingin!

Alfreð Símonarson, 11.12.2008 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband